Dagur 9 á spáni

Í dag er 9 dagur á spáni, við erum farin að spássera um hér eins og heimamenn eða hérumbil. Allavega er ég farinn að aka hér að mestu leiti án korts, og við erum búin að uppgötva öll bestu bílastæðahúsin ofl ofl. maður gæti bara vanist því að vera hérna.

Í morgun vöknuðum við tiltölulega snemma miðað við að vera í fríi, fórum niður á höfn og hittum Alain Jetdream Alain og fengum hjá honum jet ski ferðalag að eyjunni Tabarca, uþb. 2klst leiðangur. Ég sigldi alla leið á eyjuna þar sem okkur var boðin hressing sem ekki veitti af enda rífur það hressilega í að sigla svona græju, sennilega ekki ólíkt því að sitja hest.
Sóley varð svo skipstjóri hluta af bakleiðinni en ákvað fljótt að þetta væri ekki hennar, svo við skiptum, úti á miðju hafi, eitthvað gekk þetta brösulega allavega misstum við jafnvægið tvisvar, og hvolfdum jet skíinu og áttum í talsverðum erfiðleikum með að klifra upp á það aftur, en það hafðist fyrir rest og ég sigldi því restina af leiðinni aftur til Alicante, þetta er um 60km á sjó og við vorum að halda 50-60km hraða mestan tímann.

Eftir þetta fórum við í íbúð og sturtu og drifum okkur svo út aftur og upp í fjöll, skoðuðum hellinn Turismo Busot – Cuevas del Canelobre þar er 70m djúpur dropasteinshellir mjög tilkomumikill, aðkoman er frábær bílfært alveg upp að inngangi í 700m hæð. Þar inni eru dropasteinar tignarlegir sem hækka um 1cm á 100 árum,

Eftir þessa upplifun ákváðum við að nú væri formlegri dagskra hér á spáni lokið, héðan og þangað til við förum heim ætlum við að slaka á og sólbrenna svolítið

Leave a Reply