Ég keypti á föstudag sl. 2017(06) kia rio bifreið, ekna 15.000 km af bílasölunni Bílabankinn á Höfðanum, mér hefur lengi líkað vel við þessa bíla, þeir eru ólíkir öðrum bílum af svipuðum gerðum þ.e. tiltölulega hljóðlátir, og hátt upp í sæti á þeim þannig þetta er ekki alger fólksbíll.
Þennan bíl fann ég svo loks, hálfsárs gamall og ókeyrður, áður í eigu Sixt bílaleigu, en vel með farinn, einungis tvær smávægilegar skemmdir á lakki sem sjást ekki nema með vel þjálfuðu auga bílaáhugamanns. En tiltölulega einfalt ætti að vera að lagfæra þessar skemmdir og yrði bíllinn þá jafngóður nýjum. Ég fékk hann keyptann fyrir 2.030.000 kr.
Nokkrar myndir

Ég fór strax og bónaði bílinn og þreif hátt og lágt, ótrúlegt hvað hreinir bílar geta reynst skítugir!

Ég hef aldrei átt bíl sem mér hefur þótt gaman að þvo, en þetta kemst ansi nærri því, maður sér allavega mun á að þrífa og bóna svona nýlegan bíl.

Allskyns búnaður, bossahitarar, lúkuhitari, stop/go eldsneytissparnaðarstilling, smart útvarp með snertiskjá, bluetooth ofl. ríkulega búinn bíll.




