https://www.facebook.com/sabilagar/videos/10156682366522907/
Category Archives: Spánn 2017
Dagur 9 á spáni
Í dag er 9 dagur á spáni, við erum farin að spássera um hér eins og heimamenn eða hérumbil. Allavega er ég farinn að aka hér að mestu leiti án korts, og við erum búin að uppgötva öll bestu bílastæðahúsin ofl ofl. maður gæti bara vanist því að vera hérna.
Í morgun vöknuðum við tiltölulega snemma miðað við að vera í fríi, fórum niður á höfn og hittum Alain Jetdream Alain og fengum hjá honum jet ski ferðalag að eyjunni Tabarca, uþb. 2klst leiðangur. Ég sigldi alla leið á eyjuna þar sem okkur var boðin hressing sem ekki veitti af enda rífur það hressilega í að sigla svona græju, sennilega ekki ólíkt því að sitja hest.
Sóley varð svo skipstjóri hluta af bakleiðinni en ákvað fljótt að þetta væri ekki hennar, svo við skiptum, úti á miðju hafi, eitthvað gekk þetta brösulega allavega misstum við jafnvægið tvisvar, og hvolfdum jet skíinu og áttum í talsverðum erfiðleikum með að klifra upp á það aftur, en það hafðist fyrir rest og ég sigldi því restina af leiðinni aftur til Alicante, þetta er um 60km á sjó og við vorum að halda 50-60km hraða mestan tímann.
Eftir þetta fórum við í íbúð og sturtu og drifum okkur svo út aftur og upp í fjöll, skoðuðum hellinn Turismo Busot – Cuevas del Canelobre þar er 70m djúpur dropasteinshellir mjög tilkomumikill, aðkoman er frábær bílfært alveg upp að inngangi í 700m hæð. Þar inni eru dropasteinar tignarlegir sem hækka um 1cm á 100 árum,
Eftir þessa upplifun ákváðum við að nú væri formlegri dagskra hér á spáni lokið, héðan og þangað til við förum heim ætlum við að slaka á og sólbrenna svolítið
JET SKI
Fórum á Jet ski að eyjunni Tabarca frá höfninni í Alicante c.a. 2 klst sigling fram og tilbaka, 50km og meðalhraðinn líklega um 45-55 kmh á sjó, bara klikkað!
https://www.facebook.com/sabilagar/videos/10156678185012907/
slökun
Í dag var rólegheitadgur á spáni, við sóley sváfum til um hálf11 og komum okkur niður á strönd Playa Del Postiguet, Alicante og láum þar í sól og skugga og sjó til skiptis til um kl hálf5, fórum þá í fínni föt, þrifum bílinn og keyptum dísel á bílinn þrátt fyrir algjört málleysi gagnvart fólkinu á bensínstöðinni. Eftir þetta fórum við út að borða í mollinu og keyptum nauðsynjavörur í stórmarkaði þar, ég keypti mér líka vatnsheldan poka fyrir símann til að hafa um hálsinn því ég er búinn að panta ferð fyrir okkur á jet ski kringum eyjuna tabarca c.a. 2klst sigling á jet ski fram og til baka á þriðjudagsmorgun það verður eitthað gaman, á leið heim í íbúð varð á vegi okkar bjargarlaus englendingur sem hafði lent í klóm fingralangrar gleðikonu, stóð hann eftir án bakpoka síns og peninga eða síma og sagðist engann hafa fundið sem gæti talað ensku fyrr en okkur, þannig hann fékk hjá okkur fjórar evrur sem duga fyrir almenningssamgöngum að hóteli hans og þar með skildu leiðir okkar við þennan óheppna ferðamann í landi þar sem lögreglan skilur ekki orð í ensku. aumingja maðurinn, á morgun er meiningin að hafa annan letidag og reyna að viðhalda sólbrunanum svolítið, sóley hefur uppskorið tvö mosquitobit á kálfann en ég hef sloppið, konan í farmasíunni leit á bóluna og sagði mosquito aaaa og otaði að okkur einhverju töfrasmyrsli
Dagur 5 við erum að fara á þetta!
https://www.facebook.com/costablancadigital/videos/688218308040410/
Dagur 4 á spáni
Dagur 4 á spáni, fimmtudagur
Í morgun vöknuðum við frekar seint um kl 10 og hættum við jet ski ferðina að eyjunni Tabarca, sennilega gerum við það um helgina eða eftir helgi. Þá vorum við alls óákveðin hvað við myndum gera í dag svo ég googlaði bara beautiful mountain vilage near alicante og upp kom nafnið Gouladest, Goudalest er djúpur og langur dalur vestur inn af strönd Benidorm og þar er sko margt að sjá, dagurinn entist okkur ekki að skoða alla króka og kima þar, en við stoppuðum víða og sáum og upplifðum margt. Vorum komin að Castillo de San José de Guadalest um hádegi, þá var veðrið líka orðið frábært, en við fengum slatta af dropum á bílinn á leiðinni þangað. Við skoðuðum okkur um kringum kastalann og í þessu fallega þorpi í um 2 klukkustundir og skoðuðum meðal annars safn með alls kyns munum um pyntingar á öldum áður, alls staðar frá úr heiminum. Þarna voru líka fleiri söfn og mikið af souvenir búðum og greinilegt að túrisminn gerir það gott þarna, svo við komum okkur þaðan eftir smá síðdegismat (paste de’ carbonara) og keyrðum hlykkjottan og skemmtilegan veg alla leið niður í botn dalsins, þar var stífla og stöðulón fyrir vatnsaflsvirkjun frá 1968, ansi vígalegt mannvirki kannski á við kvart af kárahnjúkavirkjun. Þaðan ókum við sveitavegi fram hjá mörgum búgörðum og ávaxtagörðum, framhjá umferðarslysi þar sem bíll hafði ekið utan í brúarstólpa og þveraði nánast veginn, með aðstoð spænsku vegalögreglunnar tókst okkur að troðast framhjá með c.a. 5cm bili báðum megin við bílinn, svo áfram í átt að strandbænum Altea og skoðuðum höfnina þar og ókum strandlengjuna, þar er stórgrýtt við baðströndina en hun virðist vinsæl engu að síður meðal ferðamanna. Á leið okkar út úr Altea bæ sáum við stóran auglýsingarborða með “American Monster Truck Show” og eftir athugun kom í ljós að þeir eru með sýningu annaðkvöld kl 21, þannig meiningin er að fara á morgun í@aqualand í Benidorm og enda daginn svo þarna má monster truck shówi! Eftir það geri ég rað fyrir að við þurfum að finna okkur bensínstöð og þrífa bílinn því nú er hætt að rigna og bíllinn haugskítugur eftir hana.
Smá ferðalag óplanað
gps trakk dagsins margar upplifanir ákváðum að fresta benidorm förinni og fara frekar í safari garð nærri Elche og svo gegnum Santa Pola og suður til Torrevieja og þaðan aftur til alicante komin í íbúðina um kl 22. þessi dagur var alveg óskipulagður en heppnaðist frábærlega, á morgun ætlum við að athuga hvort við komumst í 2 klst jet ski siglingu að eyjunni tabarca suðaustur af strönd santa pola, en við færum úr höfn í alicante, mikið ferðalag ef við fáum leyfi. það var ekki leyft í dag vegna veðurspár
Ferða update
Í gær var annar dagur okkar á spáni, við höfðum svo sem ekki mikil plön annað en að fara í Castillo De Santa Barbara Alicante og skoða svo ströndina og synda í sjónum við Playa Del Postiguet, Alicante. Þegar út að bíl var komið sáum við strax að það var ekki að fara að gerast í bráð, bíllinn var ekki þar sem ég hafði lagt honum kvöldið áður. Aldrei datt mér í hug að honum hefði verið stolið, heldur frekar að hann hefði verið dreginn, vegna þess að við vorum hreinlega ekki viss hvar og hvernig mætti leggja, þó sáum við að bíl hafði verið lagt þarna skömmu áður svo við gripum það stæði, í ljós kom eftir útskýringu sem við fengum að þarna mætti bara leggja milli miðnættis og 08 að morgni, en þetta er eingöngu merkt á máli heimamanna svo ekki von nema svona mistök verði, og kannski ekki skrítið því hverfið sem við erum í er greinilega ekki neitt ferðamannapleis, sem er bara frábært í okkar huga!
Allavega, eftir nokkur símtöl við hálfenskmælandi þjónustufulltrúa hjá bílaleigunni fáum við þau skilaboð að bíllinn sé líklega hjá Imponderede de policia monipulet eða eitthvað svoleiðis, en þau höfðu ekki tíma til að hringja fyrir okkur og athuga málið þannig best væri að við tækjum bara taxa þangað og athuguðum það sjálf, mikið er ég feginn að við gerðum það ekki, því ég hringdi þangað og fékk að tala við fjora mismunandi aðila og enginn þeirra talaði ensku og allir sögðu bara sama þreytta frasann á spænsku sem þýddi sjálfsagt heimski hvítingi eða eitthvað svoleiðis. Þá var fátt eftir í handraðanum en að ræða við leigusalann okkar hann Sergio, hann hringdi fyrir okkur og fékk staðfest að bíllinn væri þarna, og við gætum leyst hann út strax gegn greiðslu sektar og dráttarkostnaðar samtals 151 evra, og meira til, Sergio gat komið eftir 10 mínútur og ekið okkur á staðinn, og túlkað fyrir okkur, algjör life saver, án hans hefðum við aldrei fengið bílinn aftur um það er ég alveg viss!
Það er líklega rétt að minnast á það að við vöknuðum um 9, uppgötvuðum að bíllinn var horfinn um kl 10, við vorum komin með bílinn aftur um kl 12 á hádegi. Þvílík hending að þetta gangi svona hratt ég sá fyrir mér allann daginn fara í þetta bras! En fyrst svona vel gekk þá var bara að bruna á bílnum og skoða kastalann, þar vorum við uþb. hálfan dag og restina vorum við á ströndinni, rétt eins og við ætluðum okkur, þannig þetta klúður með bílinn skemmdi ekkert fyrir og eftir á að hyggja var þetta bara skemmtileg lífsreynsla! eftir allt þetta komum við upp á íbúð um kl 8 og ætluðum snemma að sofa, settum míni pitsur í ofn og átum. Enduðum svo á að sofna ekki fyrr en mjög seint vegna þess hve við heilluðums af rigningunni og þrumum og eldingum, þvílíkt shjów! næsta dag ætluðum við til Benidorm en vorum óviss vegna veðurs, þangað væri líklega skemmtilegra að fara síðar í bjartara veðri. en meira um morgundaginn, miðvikudag, í næsta pistli
Sævar Örn
August 30, 2017
Ferðaupdate 2
Dagur 1 á spáni var fínn, gærdagurinn. Við fórum á rúntinn og villtumst eitthvað viljandi, og höfðum gott af, ég tel mig hafa náð áttum hérna nú þegar. Allavega komumst við örugglega í shopping mall (Plaza de’ Mar) og keyptum nauðsynjar, og fleira. Meðal annars var það sumarfrísklæðnaður á mig, slíkan klæðnað tel ég mig aldrei hafa átt fyrr, í það minnsta fundum við á mig sandalaskófatnað og sumarbrækur og þunna sokka. Allt á góðu verði að sjálfsögðu. Þvi næst villtumst við fram og til baka og enduðum á að finna bílastæði við strandlengju Playa de’ Sa Juan og röltum þar við sjóinn og settum skrefamet á skrefateljarann, 25960 sást á mínum teljara í lok dags, sló metið frá því á strikinu í kaupæðinu haustið 2015 í kaupmannahöfn. Fyrra metið var um 23000 skref. Eftir allt þetta rölt var komið rúmlega hádegi og fínt að finna sér eithvað að borða, fátt var í boði við ströndina annað en burger king og mcdonald og heillaði það takmarkað, því fundum við stað sem hét einhverju spánsku nafni og var sæmilega “heimilislegur”. Bauð þar fullorðinn maður með sígarettu í kjaftinum Normal Food For You, þrátt fyrir að hvorugt okkar skildi orð í hvorum öðrum enduðum við sóley með forrétt sem voru steiktar kartöflur og spælt egg, og aðalrétt sem var steiktur kjuklingur og spælt egg. Kannski hafði málleysið eitthvað með þetta að gera… en þetta var ágætur matur og gott magafylli. Eftir þetta át allt saman otaði maðurinn að okkur að ís væri í eftirrétt og var hann eiginlega hinn hneykslaðasti þegar við höfnuðum því boði, því þetta var “includiero!” sem sennilega þýðir innifalið í verðinu… eða í boði hússins annað hvort…
Allavega eftir að við sluppum þarna út fórum við í ávaxtabar sem var við hornið á sama stað, og keyptum okkur vínber og plómur. Eftir þetta fundum við bílinn aftur og fórum aftur í okkar bæjarfélag og röltum um markaði og meðfram smábátahöfninni, loks fengum við kvöldmat á @tarantino pizzeria sem er staður tileinkaður Quentin Tarantino, þar fengum við ágætar pitsur ekkert meira en það. Eftir þetta gengum við ströndina hér við miðbæ Alicante og enduðum svo upp við ibúð um kl 23. Eftir uþb. klukkustundar leit að bílastæði í nágrenni. Það sem við tókum ekki eftir þegar við lögðum, og þó okkur hafi grunað að þarna mætti kannsi ekki leggja var þolinmæðin á þrotum og ég ákvað að leggja bílnum þarna. En það varð okkur dýrkeypt því það sem við vissum ekki var að þarna mátti bara leggja bílum milli kl 23 og 08, og við sváfum til rúmlega 9. Þá var bíllinn farinn… meira um það í næsta pistli!