Skoðaði Túrbínuna, hún er TD04 og ættuð úr 2005 WRX Subaru, veit ekki hvort eða hversu vel hún hentar þessari vél, kemur i ljós
Category Archives: Breytingar
Verði lás!
Skipti um framstuðara
Flottur stuðari, passar fínt þurfti lítið að skera úr fyrir 38″ dekkjunum, fylgdi bara nokkurnveginn fyrri skurði, þar sem hann sást

Fyrsta pöntun komin!
Fékk driflokur, ytri öxul liði og rebuild sett fyrir hjólnáin, driflokur, olíupönnu, framstuðara ofl ofl.
Þegar ég var að slaka strekkiboltunum fyrir vindustangirnar slitnuðu þeir nánast strax, mikill hvellur og nágrannar skelkaðir, boltarnir og keilurnar undir þá kostuðu í toyota um 3000kr parið, mæli með!

Sjoppan á hvolfi, allt í drasli

Lakkaði pönnuna í ljósum lit, lýsir upp undir bílnum sér alla leka strax!

Chrome húðaður framstuðari

Nýjar AISIN driflokur, OEM

Heavy duty öxulliðir

Bremsur! (hægjur)
Bíllinn var bremsulaus, og stöðuhemill var óvirkur, nú er hægt að taka skrjensbeygjur og læsa framhjólum í það minnsta með bremsunum!

Allt nýtt í bremsur, þessi útíherslujárn voru ódýr, mæli með! Original toyota

Þegar pallinn vantar þá þarf ballest aftaná bílinn þessi þungu dekk hentuðu vel í það og varð bíllinn nokkuð stöðugur á lyftunni
Sauð bætur í grind og sá meira ónýtt
Það þarf aðeins að taka betur til hendinni, 4 link stífuvasar á hásingu eru ónýtir, demparafestingar í grind voru ónýtar er búinn að kippa því í lag…

Staðbundið ryð, það virðist bara ryðga þar sem soðið hefur verið…

Þetta gæti orðið til friðs… eitthvað

Ræfils legu svona pall laus greyið

Smá ryðviðgerðir, þolinmæðin!!
Hef aðeins verið að grilla í pallinn, gera hann góðan, lýst ágætlega á þetta bara!

Heilsauð bót í sárið, þarna var hérumbil allt farið af ryði vegna hreyfingar í upphækkunarklossum

Öflugur 2.5mm þverbiti, þetta ætti að verða til friðs!

Sleit svo afturstuðarann af, hann er að ég held ónýtur! Betra að finna annan, þarf líka að laga aðeins í grindinni þarna aftast!

Pallinn af, takk!
Reif pallinn af, veit að þar er eitthvað af ryði, ætti þó að ganga nokkuð vel að laga það, allavega er starfs aðstaðan til fyrirmyndar, lagði pallinn á hvolf ofan á kar þannig það er í sæmilegri vinnuhæð.
Sóley unnusta mín mátaði Subaru sætin og sagðist líka þau vel!

Sætin ónýt, driflásmótor ónýtur!
Fékk ný(eldgömul) sæti úr ógeðslegum Subaru hjá félaga mínum, í skiptum fyrir eitthvað gamalt drasl sem ég átti
Sama meðferð, olíuhreinsir, háþrýstidæla og svo ilmbætt sápa, sætin urðu sem ný! Geri þó ráð fyrir að setja sætishlífar yfir þau fyrir vetrarferðir í það minnsta.

Sætin þrífast vel með þessari aðferð

Eins og ný

Ég þrjóskaðist mikið kringum driflæsingarmótorinn, hef nú úrskurðað hann látinn! Mun kaupa loft tjakk fyrir læsinguna!

Innrétting þrifin! Sætin ónýt?
Tók innréttinguna úr þegar ég ryðbætti gólfið og sætisbitann, fann ýmislegt gamalt þar undir sætum og bakvið innréttingarhluti, margt antík drasl og já aðallega drasl og rusl. Hálf fullur svartur poki!
Tók teppið og bleytti í olíuhreinsi og fór með háþrýstidælu yfir, náði því ansi góðu, fór svo aðra umferð með ilmbættri sápu og fjarlægði þá svampinn neðanúr teppinu, keypti málaramottur í Múrbúðinni ódýrt og ætla að prófa að láta hana sinna hlutverki svampsins







