Category Archives: Fréttir

Hér verða almennar fréttir af gangi mála, jafnvel utan úr heimi, úr mínu lífi eða mánaðarlegar samantektir

Nýtt á síðunni

Ég var að bæta við upplýsingum á síðuna, og slóðum á útlenska build þræði undir (english)

 

Sjá Upplýsingaskjöl ofl.

 

Í dag prófaði ég í fyrsta skipti að nota pickup eins og til er ætlast, flutti uþb. 600kg af járni á pallinum og hann bar það vel, og fjaðraði fínt. Kraftaði sæmilega, fann satt að segja engan mun á því, en fannst hann þó örlítið lakari á bremsum.

 

Með fullfermi, ég hef verið spurður út í þetta fiskkar sem ég geymi járnaruslið í, og komst því að því að það er ekki leyfilegt að nota þau undir rusl. Staðreyndin er sú að ég hirti það úr ruslagámi hjá Hringrás fyrir uþb. ári síðan og hef notað það undir rusl, eins og það hafði greinilega verið notað af þeim sem skilaði því í Hringrás á sínum tíma, nú í dag skilaði ég því í Hringrás aftur þannig einhver annar getur tekið við! Hringrás!

Fyrsti smá prufurúntur

Prófaði aðeins að bóna og sá strax að það þurfti meira til, keypti massa og massaði bílinn og bónaði vel tvisvar, allt annað að sjá lakkið en það er samt mikið skemmt sums staðar og verður eki lagað nema sprauta bílinn allan

 

Skrapp svo á Úlfarsfell prófaði lága drifið og svona, er ekki búinn að tengja loftkerfi og prófaði því læsinguna ekki

 

Prófaði að tengja 2stk 12v dælur inn á rafgeymi og þá heldur hann 13.5V við 1000sn á mínútu bara allt í lagi…

Rafbíll!

Ég keypti mér rafmagns dótabíl!

https://www.facebook.com/sabilagar/videos/10156784589102907/

https://www.facebook.com/sjeiriksson/videos/10155648518467180/

https://www.facebook.com/sabilagar/videos/10156787397757907/

https://www.facebook.com/sabilagar/videos/10156787436892907/

Sævar Örn

September 14, 2017

Kominn heim eftir spánarferð

 

Þá er bara að fara að smíða!

Dagur 9 á spáni

Í dag er 9 dagur á spáni, við erum farin að spássera um hér eins og heimamenn eða hérumbil. Allavega er ég farinn að aka hér að mestu leiti án korts, og við erum búin að uppgötva öll bestu bílastæðahúsin ofl ofl. maður gæti bara vanist því að vera hérna.

Í morgun vöknuðum við tiltölulega snemma miðað við að vera í fríi, fórum niður á höfn og hittum Alain Jetdream Alain og fengum hjá honum jet ski ferðalag að eyjunni Tabarca, uþb. 2klst leiðangur. Ég sigldi alla leið á eyjuna þar sem okkur var boðin hressing sem ekki veitti af enda rífur það hressilega í að sigla svona græju, sennilega ekki ólíkt því að sitja hest.
Sóley varð svo skipstjóri hluta af bakleiðinni en ákvað fljótt að þetta væri ekki hennar, svo við skiptum, úti á miðju hafi, eitthvað gekk þetta brösulega allavega misstum við jafnvægið tvisvar, og hvolfdum jet skíinu og áttum í talsverðum erfiðleikum með að klifra upp á það aftur, en það hafðist fyrir rest og ég sigldi því restina af leiðinni aftur til Alicante, þetta er um 60km á sjó og við vorum að halda 50-60km hraða mestan tímann.

Eftir þetta fórum við í íbúð og sturtu og drifum okkur svo út aftur og upp í fjöll, skoðuðum hellinn Turismo Busot – Cuevas del Canelobre þar er 70m djúpur dropasteinshellir mjög tilkomumikill, aðkoman er frábær bílfært alveg upp að inngangi í 700m hæð. Þar inni eru dropasteinar tignarlegir sem hækka um 1cm á 100 árum,

Eftir þessa upplifun ákváðum við að nú væri formlegri dagskra hér á spáni lokið, héðan og þangað til við förum heim ætlum við að slaka á og sólbrenna svolítið

JET SKI

Fórum á Jet ski að eyjunni Tabarca frá höfninni í Alicante c.a. 2 klst sigling fram og tilbaka, 50km og meðalhraðinn líklega um 45-55 kmh á sjó, bara klikkað!

https://www.facebook.com/sabilagar/videos/10156678185012907/

slökun

Í dag var rólegheitadgur á spáni, við sóley sváfum til um hálf11 og komum okkur niður á strönd Playa Del Postiguet, Alicante og láum þar í sól og skugga og sjó til skiptis til um kl hálf5, fórum þá í fínni föt, þrifum bílinn og keyptum dísel á bílinn þrátt fyrir algjört málleysi gagnvart fólkinu á bensínstöðinni. Eftir þetta fórum við út að borða í mollinu og keyptum nauðsynjavörur í stórmarkaði þar, ég keypti mér líka vatnsheldan poka fyrir símann til að hafa um hálsinn því ég er búinn að panta ferð fyrir okkur á jet ski kringum eyjuna tabarca c.a. 2klst sigling á jet ski fram og til baka á þriðjudagsmorgun það verður eitthað gaman, á leið heim í íbúð varð á vegi okkar bjargarlaus englendingur sem hafði lent í klóm fingralangrar gleðikonu, stóð hann eftir án bakpoka síns og peninga eða síma og sagðist engann hafa fundið sem gæti talað ensku fyrr en okkur, þannig hann fékk hjá okkur fjórar evrur sem duga fyrir almenningssamgöngum að hóteli hans og þar með skildu leiðir okkar við þennan óheppna ferðamann í landi þar sem lögreglan skilur ekki orð í ensku. aumingja maðurinn, á morgun er meiningin að hafa annan letidag og reyna að viðhalda sólbrunanum svolítið, sóley hefur uppskorið tvö mosquitobit á kálfann en ég hef sloppið, konan í farmasíunni leit á bóluna og sagði mosquito aaaa og otaði að okkur einhverju töfrasmyrsli

Dagur 4 á spáni

Dagur 4 á spáni, fimmtudagur

Í morgun vöknuðum við frekar seint um kl 10 og hættum við jet ski ferðina að eyjunni Tabarca, sennilega gerum við það um helgina eða eftir helgi. Þá vorum við alls óákveðin hvað við myndum gera í dag svo ég googlaði bara beautiful mountain vilage near alicante og upp kom nafnið Gouladest, Goudalest er djúpur og langur dalur vestur inn af strönd Benidorm og þar er sko margt að sjá, dagurinn entist okkur ekki að skoða alla króka og kima þar, en við stoppuðum víða og sáum og upplifðum margt. Vorum komin að Castillo de San José de Guadalest um hádegi, þá var veðrið líka orðið frábært, en við fengum slatta af dropum á bílinn á leiðinni þangað. Við skoðuðum okkur um kringum kastalann og í þessu fallega þorpi í um 2 klukkustundir og skoðuðum meðal annars safn með alls kyns munum um pyntingar á öldum áður, alls staðar frá úr heiminum. Þarna voru líka fleiri söfn og mikið af souvenir búðum og greinilegt að túrisminn gerir það gott þarna, svo við komum okkur þaðan eftir smá síðdegismat (paste de’ carbonara) og keyrðum hlykkjottan og skemmtilegan veg alla leið niður í botn dalsins, þar var stífla og stöðulón fyrir vatnsaflsvirkjun frá 1968, ansi vígalegt mannvirki kannski á við kvart af kárahnjúkavirkjun. Þaðan ókum við sveitavegi fram hjá mörgum búgörðum og ávaxtagörðum, framhjá umferðarslysi þar sem bíll hafði ekið utan í brúarstólpa og þveraði nánast veginn, með aðstoð spænsku vegalögreglunnar tókst okkur að troðast framhjá með c.a. 5cm bili báðum megin við bílinn, svo áfram í átt að strandbænum Altea og skoðuðum höfnina þar og ókum strandlengjuna, þar er stórgrýtt við baðströndina en hun virðist vinsæl engu að síður meðal ferðamanna. Á leið okkar út úr Altea bæ sáum við stóran auglýsingarborða með “American Monster Truck Show” og eftir athugun kom í ljós að þeir eru með sýningu annaðkvöld kl 21, þannig meiningin er að fara á morgun í@aqualand í Benidorm og enda daginn svo þarna má monster truck shówi! Eftir það geri ég rað fyrir að við þurfum að finna okkur bensínstöð og þrífa bílinn því nú er hætt að rigna og bíllinn haugskítugur eftir hana.