Category Archives: Fréttir

Hér verða almennar fréttir af gangi mála, jafnvel utan úr heimi, úr mínu lífi eða mánaðarlegar samantektir

Gólf v/m komið

Þá er þessi hlið bílsins bysna langt komin, farþegahliðin sýnist mér ekki vera jafn hræðilega ryðguð, en þar þarf amk að skipta um sílsa og boddyfestingar og ég er með gólf þar líka ef í ljós kemur að þess gerist þörf.

95224

Syðra fjallabak 8.18

Við Sóley ókum Syðra fjallabak fram og tilbaka sl. helgi, í fyrsta skipti að sumarlagi.

Síðan koma myndir frá Sóley!

Kerlingarfjöll – Setur ofl.

Við Sóley skruppum með vagninn í Kerlingarfjöll og fórum svo suður með Hofsjökli og innað Setrinu og skoðuðum umhverfið þar í sumarbúningi í fyrsta skipti.

Kom smá í verk í dag

Ryðprósentan hríðfellur !

92090

Það er ótrúlega gott að fá svona gæðastykki sem passar nokkuð vel, bara gata, punkta berja og sjóða, grunna mála pensla málið dautt

92091

92092

Afturgaflinn að verða sæmilegur !

Smá samsetning, loksins

Loks kom að því að hægt var að setja saman, en ekki bara rífa í sundur

 

 

Grindarendar frá Conrad Lozier komnir í

Flott viðgerðarstykki, hægt að fá eins mikið og maður vill frá þeim

Þegar svona ber við þá rifjast upp gamlir suðutaktar, en maður er alltaf svolítið ryðgaður til að byrja með…!

Nákvæmnisverkfæri nýtt til að stilla hæð og gráðu viðgerðarstykkjanna

Nýjar bodyfestingar vm aftast

Vinstri afturhelmingur orðinn ágætur, next up síls vm, hlakkar ekkert sérstaklega til..!

 

Flestir hlutir komnir í bili

Ég sendi Sóley til Svartfjallalands(hún fór með foreldrum sínum í útskriftarferð) svo nú hef ég tvær vikur til að þræla í Chevy! Smá update fékk flesta hluti sem mig vantar, innri sílsar eru á leiðinni, byrja að skera á morgun..!

91577
91578

Það sem ég man eftir í augnablikinu, G Body gírkassabiti heavy duty, flækjur frá summit, summit startari hi torq, úrklippur úr klessubíl frá lasvegas, hlutir sem ég gat ekki fengið nýja… sílsa endar og hurðapóstar, komplett gólf og viðgerðarstykki og þverbitar

Hamingjurallý á Hólmavík

Ég skrapp vestur á Hólmavík á hilux með fellihýsi í eftirdragi, hann hafði það þokkalega blessaður en fór hægt upp þröskulda og bröttubrekku, kælivatnshiti steig aðeins en féll um leið og miðstöð var notuð á heitum blæstri, ljóst þykir því að kæligeta nýja vatnskassans er ekki næg!

Á Hólmavík var mikið fjör, og mikið aksjón í Rallkappakstri sem ég fylgdist með

Nýjir hlutir, meira ryð

Kippti mælaborðinu úr, byrjaði að losa sætisfestingar úr gólfinu sem meiningin er að sandblása og taka ákvörðun hvort keyptar verða nýjar eða þessar nýttar

Þverbitinn er furðugóður sem og sætisfestingarnar, en gólfið alveg búið

Komnir sílsar og grindarendar, bodyfestingar og fleira góðgæti frá USA

Ódýrar G Body flækjur

Gólfið fékk ég í heilu lagi, vísu sagað í helming til að spara við flutning

Allt draslið á gólfinu, orðið slatti af drasli að verðmæti rétt rúm 100þ kr sem er ekki mikið að mínu mati

Það sannast að í ameríku fæst mikið fyrir lítið, enda eru menn þar á bæ ekki að gera svona lagað við jafn ‘ómerkilega bíla’.